Tegund dvalar |
Lengd dvalar |
Upphaf- og endadagsetningar |
Gjald |
Framboð |
Meira |
|---|---|---|---|---|---|
| Hálfsársdvöl | Um það bil 5 mánuðir | janúar 2014 - júlí 2014 | 1.360.000* | Sækja um núna | Lesa meira + |
Half Year Program
Flogið er til Rómar og þar taka starfsfólk og sjálfboðaliðar AFS á móti nemum og farið á svæði nálægt Róm þar sem nemar fara á komunámskeið. Þaðan fara þeir svo til fósturfjölskyldnanna sinna.
AFS Á ÍTALÍU
Á meðan á dvölinni stendur verða auk komunámskeiðs, “6 week camp” og lokanámskeið.AFS samanstendur af deildum og sjá sjálfboðaliðar í hverri deild um að skipuleggja félaglíf fyrir AFSara
Frá febrúar og fram í apríl ár hvert býður svæðisskrifstofa AFS á hverju svæði á Ítalíu upp á skipti viku þar sem nemar geta valið að heimsækja eitthvað svæði á Ítalíu sem þeim þykir áhugavert og til að kynnast landinu á fleiri stöðum. Hver skrifstofa fyrir sig ber ábyrgð á því að finna fjölskyldu fyrir nemann þessa viku og neminn ber allan kostnað við ferðalagið. Þetta er einungis val, ekki skylda og hægt er að neita nema sem sækjir um þess konar skipti á grundvelli hegðunar, aðlögunar og annarra kringumstæðna sem tengjast veru nemans á Ítalíu.
TUNGUMÁLIÐ
Grunnþekking í ítölsku mun hjálpa aðlögunarferli nemans.
AFS á Ítalíu sendir öllum þátttakendum námskeið á netinu sem er skyldunámskeið og nemar sem ætla sér þangað verða að ljúka tilteknum stigum áður en þeir koma til landsins. Að öðrum kosti þurfa þeir að greiða 50 evrur við komuna til landsins og skrá sig á námskeið í ítölsku á þeirra svæði. Námskeiðið er tvisvar til þrisvar í viku og byggist á kunnáttu viðkomandi nema þegar hann kemur á staðinn. Námskeiðið getur verið frá 40 til 60 stundir í allt. Því lýkur í lok desember.
SKÓLINN
Skólaárið á Ítalíu byrjar í september og endar í júní. Tveggja vikna frí er gefið um jólin og vikulangt frí um páskana.
ÍTÖLSK HEIMILI OG SIÐIR
Ítalskar fjölskyldur geta verið jafn fjölbreyttar og við þekkjum hér á Íslandi, fjölskyldueiningin er þó oft í hávegum höfð og getur skipt þjóðina miklu máli. Flestar ítalskar fjölskyldur eru kaþólskar en ekki allir fara í kirkju reglulega. Reykingar eru ennþá viðhafðar inn á sumum heimilum á Ítalíu.
MATARMENNING
Ítalir eru miklir matmenn og eigum við mat eins og pasta og pizzu þeim að þakka! Ítalir borða þrisvar sinnum á dag og er hádegismaturinn stærsta máltíð dagsins.
Matarræði
Erfitt er að finna fjölskyldur fyrir nema sem kjósa aðeins grænmetisfæði. Sé neminn hins vegar sveigjanlegur þ.e. borðar hvítt kjöt og fisk þá aukast líkurnar á því að finna honum fjölskyldu.
Heilsa
Nemar þurfa að vera í almennt góðu ásigkomulagi heilsufarslega. Nemar sem hafa átt við einhver geðræn vandamál að stríða þurfa að hafa klárað lyfjameðferð að minnsta kosti ári fyrir brottför. Helstu sprautur sem nemar þurfa að hafa fengið eru: Barnaveiki, stífkrampa, lömunarveiki og lyfrarbólgu B.
| Ársdvöl | Um það bil 10 mánuðir | september 2013 - júlí 2014 | 1.560.000 | Lokað | Lesa meira + |
Skiptinemadvöl

Ítalía er í Suður-Evrópu og liggur aðallega á Appenínaskaganum. Skaginn gengur til suðausturs í Miðjarðarhafið líkt og stígvél í laginu. Í norður Ítalíu eru Alpafjöllin og til suðurs liggja strendur Miðjarðarhafsins, Landslag og veðurfar landsins er því mjög ólíkt frá norðri til suðurs. Frakkland, Sviss, Austurríki og Slóvenía eiga öll landamæri að Ítalíu og auk þess eru í landinu tvö sjálfstæð ríki, San Marínó og Vatíkanið.
Rómarborg er höfuðborg landsins og er ein af söguríkustu og merkustu borgum Evrópu og oft kölluð „borgin eilífa“ þar sem matarmenning og listir eru í hávegum höfð. Ítalía er þrisvar sinnum stærri en Ísland með um 58 milljónir íbúa.
AFS á Ítalíu hefur verið starfrækt frá árinu 1946 og þangað fara yfir 400 nemar ár hvert til skiptinemadvalar.
Einnig eru um 3500 sjálfboðaliðar þar í landi sem starfa fyrir samtökin. Ítalía er semsagt mjög virkt AFS land og á hverju ári fara um 12 íslenskir nemar til Ítalíu og er það án efa eitt af vinsælustu löndunum á meðal skiptinema um allan heim.
Vissir þú að…
...Ítalía skiptist í tuttugu héruð sem hvert hvefur sinn höfuðstað
...Ítalir fá sér sætabrauð í morgunmat
...Ítalir borða pasta a.m.k. fjórum sinnum í viku
Hér eru blogg frá skiptinemunum okkar:
http://hildae95.blogspot.com/
www.selmaitalia.blogspot.it
http://karitaseik.blogspot.it/
vigdishaflida.blogspot.com
www.audurkatrinvidis.blogspot.com