Ég átti 10 ára skiptinema afmæli í þessum mánuði og á þessum 10 árum hefur ekki liðið sá dagur sem ég hef ekki á einhvern hátt minnst þessara 10 mánuða sem ég eyddi hjá frábærri fjölskyldu í æðislegu landi. Við erum enn í dag í mjög nánu sambandi. Að fara út sem skiptinemi er besta ákvörðun sem ég hef tekið!

Kristín Þóra Sigurðardóttir Ítalía 2001-2002

 Átti dásamlega skemmtilegt ár hjá frábærri fjölskyldu. Er í miklu sambandi við skiptinemafjölskylduna mína og er að fara í heimsókn í fjórða skipti næsta sumar og nú tek ég börnin mín með mér!!:OD Austurríska fjölskyldan mín hefur komið tvisvar til Íslands og besta vinkona mín er Íslandssjúk!!!! Að gerast skiptinemi var í rauninni skyndiákvörðun í mínu tilviki.....en þvílíkt góð ákvörðun!

Ásgerður Inga Stefánsdóttir Austurríki 1997-1998

Hvað er AFS fyrir þér?

Allir vinir mínir sem ég eignaðist á skiptinemadvöl minni eru ómetanlegir og dvölin öll í heild sinni :)

Besti tími lífs míns ;)

Svava Blöndal

Hvað dettur þér í hug þegar þú lest orðið AFS?

Hamingja dóttur minnar hinu megin á hnettinum!



Ragnheiður María Adólfsdóttir, móðir skiptinema

Hvað dettur þér í hug þegar þú lest orðið AFS?

AFSkaplega skemmtileg reynsla, AFSpyrnu skemmtilegt sjálfboðaliðastarf ;)


Steinunn S. Ólafardóttir