Hvernig starfar AFS?
Aðildarlönd
AFS eru nú 54 og árlega fara um 10.000 ungmenni um heim allan til dvalar á vegum samtakanna í lengri eða skemmri tíma.
Í sérhverju aðildarlandi starfar landsfélag og er það fjárhagslega og rekstrarlega sjálfstæð eining. Alþjóðastjórn og alþjóðaskrifstofa
AFS marka stefnu samtakanna, í samvinnu við landsfélögin, fylgjast með og samræma starfshætti og veita landsfélögunum aðstoð eftir þörfum.
Sérhvert landsfélag hefur eigin stjórn sem mótar stefnu og áherslur í starfi félagsins. Daglegur rekstur er í höndum framkvæmdastjóra og starfsfólks en að starfinu kemur fjöldi sjálfboðaliða. Starfræktar eru svokallaðar deildir, þar sem sjálfboðaliðar, í samvinnu við starfsfólk, skipuleggja og bera ábyrgð á starfsemi
AFS á svæðinu.
Það er misjafnt milli ára hvaða lönd eru í boði. Það kemur meðal annars til vegna þess að sum lönd eru eftirsóttari en önnur og geta ekki tekið á móti nema ákveðnum fjölda skiptinema.