AFS menntun

Þegar talað er um nemendaskipti er gjarnan minnst á hvað þeim fylgir mikill þroski fyrir alla hlutaðeigandi. Þetta er innihald þeirrar óformlegu menntunar sem AFS býður upp á, bæði þeim sem fara sem skiptinemar og þeim sem taka á móti skiptinemum.

Innan AFS eru hugtökin „lærdómur um aðra menningarheima“ (e. Intercultural learning) og „hnattræn menntun“ (e. global education) notuð til að lýsa því hvað þessi óformlega menntun felur í sér.

Lærdómur um aðra menningarheima
Sú reynsla sem AFS býður upp á er að komast í nána snertingu við aðra menningu en sína eigin. Ungmenni fara til dvalar í öðru landi, búa hjá þarlendum fjölskyldum og ganga í þarlenda skóla.

Skiptineminn og þeir sem hann umgengst í dvalarlandinu og eftir að heim kemur komast þannig í kynni við gildi, lífsmáta og hugsunarhátt sem eru ólík því sem þeir eiga að venjast og verða sér meðvitaðri um eigin menningu.

Hnattræn menntun
Eitt af því sem lærdómur um aðra menningarheima felur í sér er hnattræn menntun, þ.e. menntun, formleg og óformleg, sem stuðlar að auknum skilningi og vitund fólks um málefni sem eru öllum sameiginleg og snerta alla heimsbyggðina.

Dæmi um slík mál eru umhverfismál, mannréttindamál, skipting auðs og valds og staða minnihlutahópa. Sá sem hefur hlotið slíka menntun skynjar að veröldin er eitt stórt samfélag með mörg sameiginleg vandamál og að það sem gerist í einum heimshluta hefur áhrif í öðrum heimshlutum.