90 ára saga AFS

Uppruna samtakanna má rekja til bandarískra sjálfboðaliða sem óku sjúkrabílum á vígvöllum Frakklands í fyrri heimsstyrjöldinni. 


Sjálfboðaliðrarnir stofnuðu í kjölfarið samtökin AFS eða American Field Service.

Þeir töldu að aukin kynni og skilningur milli þjóða gætu dregið úr líkum á því að hörmungar stríðsins endurtækju sig og að nemendaskipti væru leið til að ná þessu markmiði.

Eftir þessari hugsjón starfar AFS enn þann dag í dag. HÉR má lesa stefnuyfirlýsingu AFS um markmið og grunngildi samtakanna.

AFS hóf nemendaskipti fyrst í Bandaríkjunum árið 1947 og árið 1957 héldu átta fyrstu íslensku skiptinemarnir til Bandaríkjanna.Síðan hefur starfið vaxið og nú sendir AFS á Íslandi árlega milli 100-120 skiptinema til dvalar á erlendri grund og tekur á móti 20-30 erlendum nemum ár hvert.

Hér er afmælismyndband AFS þegar alþjóðasamtökin fögnuðu 60 ára afmæli árið 2007.