Hvað er danskur lýðháskóli?
Danskir lýðháskólar eru einstakir. Skólarnir eru hluti af óformlega menntakerfinu í Danmörku og ekki er hægt að bera þá saman við háskóla eða fagnámskeið þar sem áherslan lögð á próf og drifkraftinn til árangurs. Í dönskum lýðháskólum byggist kennslan á samræðum og þekkingarskiptum á milli kennara og nemenda.
Nemendur (sem eru á aldrinum 18 til 30 ára) dvelja í lýðháskólanum og fræðast þar um ýmislega hluti, allt eftir því hvar áhugasviðið liggur. Þú munt upplifa persónulegan vöxt og öðlast þvermenningarlega vitund. Í lýðháskólanum þróar þú hæfileika þína innan þíns áhugasviðs, þú þroskast persónulega og gerir áætlanir til framtíðar. Þú getur lesið meira um danska lýðháskóla hér.
Odder Folk College aims to provide you with an overview and perspective in a world which is ever changing. It is a folk college with a strong focus on developing creativity in all aspects of your life.
The folk college has a wide range of subjects such as film & TV production, design, programming, gaming, technology, music, song, dance, design, sports, drawing and art.
Lestu meira um Odder lýðháskólann hér.
Praktískar upplýsingar:
- Kostnaður fyrir fæði, gistingu og kynningu meðan á dvöl þinni stendur er innifalinn, en þú þarft samt að leggja fram 90 DKK á viku fyrir námsefni og afþreyingu.
- Þú tekur þátt í skyldunámi erlendis á vorin. Kostnaður er u.þ.b. 800 Evrur, greitt beint til Lýðháskólans
- Ef þú velur að læra „útiveru“ tekur þú þátt í auka skyldunámi. Kostnaður við þetta er 320 Evrur, sem greiðist beint til Lýðháskólans.
- Þú stendur straum af eigin vasapeningum og persónulegum útgjöldum. Danmörk er dýrt land, svo við mælum með að gera ráð fyrir að lágmarki 160 Evrum á mánuði.
- Sjálfboðaliði frá AFS sækir þig á flugvöllinn og fylgir þér í Lýðháskólann
- Þér verður boðið á kynningarhelgi á vegum AFS
