Við erum ótrúlega spennt fyrir því að þú sért að stíga fyrstu skrefin í átt að spennandi ævintýri með AFS!
Til að auðvelda þér umsóknarferlið höfum við tekið saman stutta lýsingu á hverju skrefi hér fyrir neðan, svo þú vitir nákvæmlega hvað tekur við og hvernig þú getur hafið umsóknina þína. Eftir stutta stund munt þú fá tölvupóst frá okkur sem mun einnig biðja ykkur um að bóka upplýsingarfund þar sem farið er yfir AFS og ferlið við að sækja um betur. Gott er að kynna sér það hér og koma með spurningar um ferlið á fundinn.




