Við erum byrjuð að leita að fjölskyldum til að opna heimili sín fyrir flottum hópi nema sem mun koma til Íslands í ágúst 2026.
Við erum byrjuð að fá umsóknir frá samstarfslöndunum okkar víðs vegar um heiminn og munum við byrja að birta upplýsingar um nemana sem hafa sótt um í apríl 2026.
Ef þið viljið fá frekari upplýsingar um hvað það er að vera AFS fjölskylda, þá ekki hika við að senda póst á [email protected] eða á [email protected]
AFS fjölskyldan sér skiptinemanum sínum fyrir fæði og húsnæði, en annan kostnað greiðir nemandinn sjálfur, svo sem útgjöld vegna tómstunda og annan vasapening.
AFS sér um að skrá skiptinemann í skólann, greiðir skólagjöld og námsbækur og aðstoðar við aðlögun, t.d. með námskeiðum.
AFS fjölskyldur gera starf AFS mögulegt
Á hverju ári taka 10.000 AFS fjölskyldur, í 54 löndum þar sem AFS starfar, á móti skiptinemum. AFS hefur áratuga reynslu af nemendaskiptum þar sem samtökin hafa starfað í rúmlega 60 ár í fjölmörgum löndum í heiminum og fleiri þúsund skiptinemar og fjölskyldur hafa tekið þátt í starfsemi AFS. Fjölmargar íslenskar fjölskyldur hafa þegar opnað heimili sitt og mæla eindregið með þeirri reynslu og hvetja fólk sem hefur áhuga á að kynnarst borgurum heimsins að bjóða skiptinema inn í líf sitt.
Allt sem þið þurfið er hjartarými, löngun til að læra eitthvað nýtt og sveigjanleika.
Þeir sem hafa áhuga á nánari upplýsingum geta haft samband við skrifstofu AFS á Íslandi í síma: 552-5450 eða á [email protected]
Mio frá Japan
Mio er 17. ára stelpa frá Japan. Hún býr með foreldrum sínum og eldri systur. Hún á stóran vinahóp sem eru dugleg að hittast. Ástæðan fyrir því að koma til Íslands er sú að henni langar til að kynnast landi og fólki sem hefði allt aðra menningu og lífssýn en hennar þjóð.
Mio ætlar að dvelja í 10. mánuði
Elia frá Ítalíu
Elia er 17 ára strákur frá Ítalíu. Hann býr með foreldrum sínum og á einn eldri bróðir. Hann lýsir sér sem þrjóskum en er opinn og fljótur að kynnast fólki. Áhugamálin hans eru tengd tölvuleikjum og körfubolta. Hann æfði körfubolta en spila núna sér til skemmtunar. Elia er spenntur fyrir að koma til Íslands, bæði til að læra tungumálið, kynnast menningu og siðum sem eru örugglega öðruvísi en hann hefur alist upp við, eins og hann segir í umsókninni.
Elia ætlar að dvelja í 10 mánuði.
Nathanael frá Frakklandi
Nathanael er 18 ára strákur frá Frakklandi. Hann er næst yngstur af fjórum systkinum. Foreldrar hans lýsa honum sem uppátækjasömum og finnst gaman að stríða systkinum sínum. Áhugamálin hans Nathanaels eru tengd bæði íþróttum og félagslífi. Hann æfir körfubolta og blak en finnst líka gott að setjast niður til að lesa eða horfa á mynd. Einnig hefur hann gaman af því að spila borðspil í góðra vina hópi. Honum hlakkar til að koma til Íslands til að kynnast fólkinu sem býr hér og læra um menningu sem er ólík hans eigin.
Nathanael ætlar að dvelja í 10 mánuði.
Rumoi frá Japan
Rumoi er 16 ára stelpa frá Japan. Hún býr með foreldrum sínum og er yngst af þremur systrum. Hún lýsir sér sem opinni og jákvæðri, er tilbúin að tileinka sér nýtt tungumál og menningu. Rumoi hefur mikin áhuga á íþróttum, hún æfir blak og judo en langar að kynnast handbolta sem hún veit að er mjög vinsæl íþrótt hér á Íslandi.
Rumoi ætlar að dvelja í 10. mánuði.
Helena frá Belgíu
Helena er 17 ára stelpa frá Belgíu. Hún er yngst af þremur systkinum. Hún æfir fimleika og hefur aðstoðað við þjálfun yngri nemenda. Einnig tekur hún virkan þátt í skátastarfi í sínum heimabæ. Foreldrarnir hennar lýsa henni sem sjálfstæðri og dugleg að bjarga sér. Helenu hlakkar til að kynnast íslenskri menningu, upplifa sögusvið bókanna sem hún hefur lesið og upplifa hið daglega líf á Íslandi.
Helena er grænmetisæta og ætlar að dvelja í 3. mánuði.
Yoemi frá Sviss
Yoemi er 16 ára stelpa frá Sviss. Hún býr með foreldrum sínum en á eldri hálfbróðir sem býr ekki hjá þeim. Foreldranir hennar segja að hún sé feimin til að byrja með en verður svo ákveðin og opin þegar hún fer að kynnast fólkinu í kringum hana. Yoemi hefur bæði æft ballett og lært á píanó síðustu 10 ár, henni þætti mjög gaman að geta haldið því áfram hér til að kynnast því hér. Hún hefur líka gaman að því að elda og baka. Yoemi hefur komið til Íslands í frí og heillaðist hún af landinu og fannst mikil upplifun á fara á hestbak. Hún er mikill dýravinur og á tvær kisur sem hún ætti eftir að sakna.
Yoemi er flexiterian og ætlar að dvelja í 10 mánuði.
Sophie frá Ítalíu
Sophie er 17 ára stelpa frá Ítalíu. Hún býr með foreldrum sínum og bróður. Hún er mjög listræn, teiknar mikið og finnst gaman að sauma, elda og baka. Núna stundar hún nám í menntaskóla sem sérhæfir sig í listtengdum fögum. Sophie getur gleymt sér við lestur góðrar bókar eða við að hlusta á tónlist. Henni hlakkar til að koma til Íslands, kynnast fólkinu og læra íslensku.
Sophie ætlar að dvelja í 10 mánuði
Kea frá Þýskalandi
Kea er 16 ára stelpa frá Þýskalandi. Hún býr með foreldrum sínum og tveimur yngri bræðrum. Kea nýtir mest af frítímanum sínum við að aðstoða í hesthúsi nálægt heimili hennar og fara á hestbak. Einn af hestunum sem hún sér um er íslenskur. Einnig finnst henni gott að setjast niður og lesa, hlusta á tónlist eða hljóðbók. Kea er spennt fyrir að kynnast og lesa meira um sögu Íslands og ekki síst að læra íslensku. Hún er nú þegar farin að læra einfaldar setningar sem hún veit að muni koma að góðum notum þegar hún hittir AFS fjölskylduna sína.
Kea er grænmetisæta og ætlar að dvelja í 10 mánuði.
Finja frá Þýskalandi
Finja er 16 ára stúlka frá Þýskalandi. Hún býr hjá foreldrum sínum og á tvö eldri systkini. Hún lýsir sér sem forvitinni og áhugasamri um marga hluti. Finju finnst gaman að spila á píanó og mikinn áhuga á klifri, einnig les hún mikið og teiknar. Henni finnst gott að synda og er dugleg að hitta vini sína til að spila borðspil. Finju hlakkar til að kynnast fjölskyldunni sem mun taka á móti henni og fá aðrar áskoranir en hún er vön.