Kæru AFSarar
Við erum byrjuð að leita að fjölskyldum til að opna heimili sín fyrir flottum hópi nema sem mun koma til Íslands í ágúst 2026.
Við erum byrjuð að fá umsóknir frá samstarfslöndunum okkar víðs vegar um heiminn og munum við byrja að birta upplýsingar um nemana sem hafa sótt um í apríl 2026.
Ef þið viljið fá frekari upplýsingar um hvað það er að vera AFS fjölskylda,  þá ekki hika við að senda póst á [email protected] eða á [email protected]
AFS fjölskyldan sér skiptinemanum sínum fyrir fæði og húsnæði, en annan kostnað greiðir nemandinn sjálfur, svo sem útgjöld vegna tómstunda og annan vasapening.
AFS sér um að skrá skiptinemann í skólann, greiðir skólagjöld og námsbækur og aðstoðar við aðlögun, t.d. með námskeiðum.

AFS fjölskyldur gera starf AFS mögulegt

Á hverju ári taka 10.000 AFS fjölskyldur, í 54 löndum þar sem AFS starfar, á móti skiptinemum. AFS hefur áratuga reynslu af nemendaskiptum þar sem samtökin hafa starfað í rúmlega 60 ár í fjölmörgum löndum í heiminum og fleiri þúsund skiptinemar og fjölskyldur hafa tekið þátt í starfsemi AFS. Fjölmargar íslenskar fjölskyldur hafa þegar opnað heimili sitt og mæla eindregið með þeirri reynslu og hvetja fólk sem hefur áhuga á að kynnarst borgurum heimsins að bjóða skiptinema inn í líf sitt.

Allt sem þið þurfið er hjartarými, löngun til að læra eitthvað nýtt og sveigjanleika. 

Þeir sem hafa áhuga á nánari upplýsingum geta haft samband við skrifstofu AFS á Íslandi í síma: 552-5450 eða á [email protected]


Jelena frá Belgíu

Jelena er 17 ára stelpa frá Belgíu. Hún býr með pabba sínum og tveimur eldri bræðrum. Henni er lýst sem sjálfstæðri og góðum námsmanni. Jelena er dugleg að stunda líkamsrækt og útiveru. Hún tekur þátt í leiklist í skólanum en heima fyrir er hún dugleg að elda og baka. Hún á marga vini sem hafa gaman að hittast. Jelena hlakkar til að koma til að kynnast Íslandi, menningunni og matnum. Fara út úr þægindarammanum og deila reynslunni með AFS fjölskyldunni

Jelena ætlar að dvelja í þrjá mánuði.

 


Elia frá Ítalíu

Elia er 17 ára strákur frá Ítalíu. Hann býr með foreldrum sínum og á einn eldri bróður. Hann lýsir sér sem þrjóskum en er opinn og fljótur að kynnast fólki. Áhugamálin hans eru tengd tölvuleikjum og körfubolta. Hann æfði körfubolta en spilar núna sér til skemmtunar. Elia er spenntur fyrir að koma til Íslands, bæði til að læra tungumálið, kynnast menningu og siðum sem eru örugglega öðruvísi en hann hefur alist upp við, eins og hann segir í umsókninni. Elia er ekki hrifinn af hundum

Elia ætlar að dvelja í 10 mánuði.

 


Nathanael frá Frakklandi

Nathanael er 18 ára strákur frá Frakklandi. Hann er næstyngstur af fjórum systkinum. Foreldrar hans lýsa honum sem uppátækjasömum og honum finnst gaman að stríða systkinum sínum. Áhugamál Nathanaels eru tengd bæði íþróttum og félagslífi. Hann æfir körfubolta og blak en finnst líka gott að setjast niður til að lesa eða horfa á mynd. Einnig hefur hann gaman af því að spila borðspil í góðra vina hópi. Hann hlakkar til að koma til Íslands til að kynnast fólkinu sem býr hér og læra um menningu sem er ólík hans eigin.

Nathanael ætlar að dvelja í 10 mánuði.

 


Yoemi frá Sviss

Yoemi er 16 ára stelpa frá Sviss. Hún býr með foreldrum sínum en á eldri hálfbróður sem býr ekki hjá þeim. Foreldrar hennar segja að hún sé feimin til að byrja með en verði svo ákveðin og opin þegar hún fer að kynnast fólkinu í kringum sig. Yoemi hefur bæði æft ballett og lært á píanó síðustu 10 ár, henni þætti mjög gaman að geta haldið því áfram hér til að kynnast því hér. Hún hefur líka gaman að því að elda og baka. Yoemi hefur komið til Íslands í frí og heillaðist af landinu og fannst mikil upplifun að fara á hestbak. Hún er mikill dýravinur og á tvær kisur sem hún ætti eftir að sakna.

Yoemi er flexiterian og ætlar að dvelja í 10 mánuði.


Sophie frá Ítalíu

Sophie er 17 ára stelpa frá Ítalíu. Hún býr með foreldrum sínum og bróður. Hún er mjög listræn, teiknar mikið og finnst gaman að sauma, elda og baka. Núna stundar hún nám í menntaskóla sem sérhæfir sig í listtengdum fögum. Sophie getur gleymt sér við lestur góðrar bókar eða við að hlusta á tónlist. Hún hlakkar til að koma til Íslands, kynnast fólkinu og læra íslensku.

Sophie ætlar að dvelja í 10 mánuði

 

 


Kea frá Þýskalandi

Kea er 16 ára stelpa frá Þýskalandi. Hún býr með foreldrum sínum og tveimur yngri bræðrum. Kea nýtir mest af frítímanum sínum við að aðstoða í hesthúsi nálægt heimili hennar og fara á hestbak. Einn af hestunum sem hún sér um er íslenskur. Einnig finnst henni gott að setjast niður og lesa, hlusta á tónlist eða hljóðbók. Kea er spennt fyrir að kynnast og lesa meira um sögu Íslands og ekki síst að læra íslensku. Hún er nú þegar farin að læra einfaldar setningar sem hún veit að muni koma að góðum notum þegar hún hittir AFS fjölskylduna sína.

Kea er grænmetisæta og ætlar að dvelja í 10 mánuði.

 


Michal frá Slóvakíu

Michal er 17 ára strákur frá Slóvakíu. Hann býr með foreldrum sínum og eldri bróður. Foreldrar hans lýsa honum sem jákvæðum strák sem eigi auðvelt með að kynnast öðrum. Michal finnst best að hafa nóg að gera, ef hann er ekki að setja saman rafeindaíhluti, æfir hann Thai box, hlustar á tónlist og spilar tölvuleiki við vini sína. Hann valdi að koma til Íslands til að fá innsýn inn í tungumálið og upplifa hversdagsleikann með AFS fjölskyldunni sinni sem hann hlakkar til að hitta.

Michal er með kattarofnæmi og ætlar að dvelja í þrjá mánuði.

 


Dilay frá Tyrklandi

Dilay er 16. ára stelpa frá Tyrklandi. Hún býr með mömmu sinni og eldri systur. Dilay spilar allavega á þrjú hljóðfæri, fiðlu, Kalimba og harmonikku. Hún er listræn, er dugleg að teikna og hefur gaman að fara í leikhús, einnig er hún dugleg að taka þátt í leiklist í skólanum. Dilay les mikið og hefur mikinn áhuga á tyrkneskri sögu og þess vegna langar hana að kynnast nýrri menningu með því að fara í skiptinám til Íslands. Dilay hlakkar til að deila sinni sögu með íslensku fjölskyldunni ásamt því að leyfa þeim að kynnast hennar í gegnum bæði tónlist og mat.

Dilay ætlar að dvelja í 10 mánuði.


Léna frá Ungverjalandi

Léna er 15 ára stelpa frá Ungverjalandi. Hún býr með foreldrum sínum og tveimur systrum. Henni finnst gott að setjast niður og lesa, einnig er hún mikið fyrir að föndra, bæði að mála og móta í leir. Léna er mikið fyrir útiveru, sund og klifur. Hún hlakkar til að sjá hvað Ísland hefur að geyma, bæði náttúruna og menninguna. Léna er samviskusöm og góður námsmaður.

Léna mun fara í grunnskóla og ætlar að dvelja í 10 mánuði.

 

 


Antonio frá Spáni

Antonio José er 17 ára strákur frá Spáni. Hann býr með foreldrum sínum og tvíburabróður. Foreldrar hans lýsa honum sem sjálfstæðum og félagslyndum. Antonio finnst gaman að horfa á bíómyndir og hlusta á tónlist. Hann stundar mikið útivist, fer mikið út að hjóla og í göngur. Einnig er hann duglegur að fara í ræktina með vinum sínum og hittast þeir líka oft eftir skóla. Antonio hlakkar til að kynnast landi og þjóð, kynnast matnum sem skiptir miklu máli í hans menningu og kynna sína menningu fyrir AFS fjölskyldunni.

Antonio er með ofnæmi fyrir köttum og ætlar að dvelja í þrjá mánuði.

 


Paoyok frá Taílandi

Paoyok er 16 ára stelpa frá Taílandi. Hún býr með foreldrum sínum og á einn eldri bróður. Fjölskyldan hefur verið dugleg að ferðast, því hún hefur komið oft til Evrópu. Paoyok heillaðist af Íslandi eftir að hafa séð umfjöllun á TikTok. Hún sá að þetta væri það sem hana langaði að kynnast, læra á því að búa í öðru landi sem er gerólíkt hennar. Paoyok er áhugasöm um að kynnast nýju fólki og er ekki hrædd við að takast á við þær áskoranir sem munu koma upp. Áhugamálin hennar eru að lesa, hlusta á hljóðbækur. Paoyok lýsir sér opinni og sjálfstæðri stelpu sem hlakkar til að kynnast Íslandi og deila sinni menningu með AFS fjölskyldunni sinni.

Paoyok ætlar að dvelja í 10 mánuði.

 


Eoin frá Þýskalandi

Eoin er 16 ára gamall strákur frá Þýskalandi. Hann býr með móður sinni og stjúpföður. Eoin segir að fjölskyldan hans lýsi honum sem gamaldags því áhugamálin hans séu þau sem eldra fólk hafi gaman af. Eoin líður vel að vera úti í náttúrunni og hlakkar til að kynnast þeirri íslensku. Honum finnst mjög merkilegt hvað Ísland hefur haldið vel í tungumálið. Hann les mikið og grúskar mikið um lífið og tilveruna. Eoin æfir judo og stundar klifur með afa sínum. Eoin er mikill dýravinur og hefur mikinn áhuga á dýrum, þar sem fjölskyldan á snák sem gæludýr. Í frítímanum þá hefur hann meðal annars tekið þátt í unglingastarfi í slökkviliðinu og finnst honum hann læra mikið af því.

Eoin ætlar að dvelja í 10. mánuði.


Evan frá Bandaríkjunum

Evan er 17 ára frá Bandaríkjunum. Hann býr með móður sinni og tveimur yngri systkinum. Honum er lýst sem góðum námsmanni sem hefur mörg áhugamál. Evan finnst gaman að taka ljósmyndir, vera í náttúrunni eða teikna og mála. Hann er duglegur að aðstoða heimavið með systkini sín. Evan lýsir sér sem listrænum og hefur gaman af því að sauma og breyta fötum sem hentar hans stíl. Evan hlakkar til að koma til Íslands, læra íslensku, kynnast fólkinu og menningunni sem er mjög ólík þeirri sem hann hefur alist upp við.

Evan ætlar að dvelja í 10 mánuði.

 


Eva Marie frá Tékklandi

Eva Marie er 17 ára stelpa frá Tékklandi. Hún býr með foreldrum sínum, eldri bróður og yngri systur. Vinir hennar segja að hún hafi mikið keppnisskap og sé ekki hrædd við áskoranir. Hún hefur æft fimleika síðan hún var fjögurra ára og hefur keppt bæði innan Tékkland og farið erlendis í keppnir. Önnur áhugamál tengjast tónlist og dansi. Eva Marie hlakkar til að koma til Íslands, til að kynnast AFS fjölskyldunni sinni, eignast nýja vini og æfa fimleika með íslenskum hóp.

Eva Marie ætlar að dvelja í 3 mánuði.

 


Johanna Eva frá Þýskalandi

Johanna Eva er 16 ára stelpa frá Þýskalandi. Hún býr að mestu hjá pabba sínum en mamma hennar og yngri bróðir búa rétt hjá. Fjölskyldan hennar hefur sameiginlegt áhugamál sem er útivist, hjólreiðar, fara á skíði og hestbak. Fjölskylda og vinir lýsa henni sem forvitinni og glaðlegri. Johanna Eva er metnaðarfull í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur, hún segir að það séu bæði kostir og gallar við það. Hún er listræn á margan hátt og hefur hún mikin áhuga á að halda áfram á þeirri braut, læra á rafmagnsbassa, dansa og teikna. Johanna Eva sér möguleikana í að kynnast íslenska skólakerfinu og læra íslenskuna, sem hún á nú ekki von á að verði auðvelt.

Johanna Eva ætlar að dvelja í 10 mánuði.


Mio frá Japan

Mio er 17 ára stelpa frá Japan. Hún býr með foreldrum sínum og eldri systur. Hún á stóran vinahóp sem eru dugleg að hittast. Ástæðan fyrir því að hún vill koma til Íslands er sú að hana langar til að kynnast landi og fólki sem hefði allt aðra menningu og lífssýn en hennar þjóð.

Mio er komin með fjölskyldu.

 

 


Samuel frá Slóvakíu

Samuel er 17 ára strákur frá Slóvakíu. Hann býr með foreldrum sínum og eldri tvíburasystrum. Hann hefur mikinn áhuga á fótbolta og er duglegur að fara á tónleika eða aðra viðburði með vinum sínum eða fjölskyldu. Hann er í alþjóðlegum menntaskóla og nýtir sér félagslífið þar eftir skóla, t.d. að spila borðspil eða taka þátt í hinum ýmsum klúbbum. Með því að koma til Íslands ætlar hann að nýta sér tækifærið til að læra margt nýtt sem mun gefa honum styrkleika í að fara í framhaldsnám erlendis eftir að hann klárar skólann.

Samuel er kominn með fjölskyldu.

 



Helena frá Belgíu

Helena er 17 ára stelpa frá Belgíu. Hún er yngst af þremur systkinum. Hún æfir fimleika og hefur aðstoðað við þjálfun yngri nemenda. Einnig tekur hún virkan þátt í skátastarfi í sínum heimabæ. Foreldrar hennar lýsa henni sem sjálfstæðri og dugleg að bjarga sér. Helena hlakkar til að kynnast íslenskri menningu, upplifa sögusvið bókanna sem hún hefur lesið og upplifa hið daglega líf á Íslandi.

Helena er komin með fjölskyldu.

 

 


Rumoi frá Japan

Rumoi er 16 ára stelpa frá Japan. Hún býr með foreldrum sínum og er yngst af þremur systrum. Hún lýsir sér sem opinni og jákvæðri, er tilbúin að tileinka sér nýtt tungumál og menningu. Rumoi hefur mikinn áhuga á íþróttum, hún æfir blak og júdó en langar að kynnast handbolta sem hún veit að er mjög vinsæl íþrótt hér á Íslandi. Hún er með kattaofnæmi.

Rumoi er komin með fjölskyldu.

 

 


Miranda frá Bandaríkjunum

Miranda er 17 ára stelpa frá Bandaríkjunum. Hún býr með foreldrum sínum og bróður. Hennar aðal áhugamál eru siglingar og lestur, hún les mikið og hlakkar til að geta lesið Íslendingasögurnar á Íslensku. Miranda hefur mikin áhuga á sögu og kynnir sér efnið í þaula þegar koma upp spurningar. Hún er með mikin áhuga á Íslandi og kom hingað árið 2025 og fór á námskeið í íslensku og hefur haldið þeirri kunnáttu við. Miranda segir að hún hafi góða aðlögunarhæfni og segir að besta leiðin til að kynnast landinu sé að kynnast fólkinu í kringum hana.

Miranda er komin með fjölskyldu.


Finja frá Þýskalandi

Finja er 16 ára stúlka frá Þýskalandi. Hún býr hjá foreldrum sínum og á tvö eldri systkini. Hún lýsir sér sem forvitinni og áhugasamri um marga hluti. Finju finnst gaman að spila á píanó og hún hefur mikinn áhuga á klifri, einnig les hún mikið og teiknar. Henni finnst gaman að synda og er dugleg að hitta vini sína til að spila borðspil. Finja hlakkar til að kynnast fjölskyldunni sem mun taka á móti henni og fá aðrar áskoranir en hún er vön.

Finja er komin með fjölskyldu.