Hvað er lýðskóli?
Lýðskólar eru einstakir. Skólarnir eru hluti af óformlega menntakerfi Norðurlanda. Óformlega menntakerfið er ekki samanburðarhæft við háskóla eða aðra formlega faglega menntun, þar sem áherslan lögð á próf og sannanlegan árangur. Í lýðskólum byggist kennslan á samskiptum og umræðum á milli kennara og nemenda.
Nemendur (sem eru á aldrinum 18 til 30 ára) dvelja í lýðskólanum og læra þar um ýmislega hluti, allt eftir því hvar áhugasviðið liggur. Nemandinn upplifir persónulegan vöxt og öðlast þvermenningarlega vitund. Í lýðskólanum þróar nemandinn hæfileika sína innan síns áhugasviðs og þroskast persónulega og gerir áætlanir til framtíðar.
Smelltu hér til að sjá lýðskóla í boði
