Hvernig get ég gerst sjálfboðaliði á vegum AFS?
Þú getur haft samband við skrifstofu AFS á Íslandi og boðið þig fram. Við bjóðum öllum heimkomnum skiptinemum uppá þjálfunarnámskeið á haustin, þar er vandlega farið yfir hvaða störf eru í boði og hvað felst í því að vera sjálfboðaliði á vegum AFS.
Get ég gerst sjálfboðaliði þó ég hafi ekki farið sem skiptinemi á vegum AFS?
Já, því sjálfboðaliðastörf á vegum AFS er mjög fjölbreytt. Við bjóðum alla velkomna sem hafa jákvætt hugarfar og eru tilbúnir að starfa með mjög fjölbreyttum hópi fólks.
Þeir sem starfa sem sjálfboðaliðar með AFS eru langflestir fyrrverandi skiptinemar. Sumir hefja störf strax að loknu skiptinemaárinu sínu, aðrir koma inn í starfið síðar. Sumir starfa lengi, aðrir í styttri tíma. Það er aldrei er of seint að byrja og þátttaka allra er mikils metin.
Annar hópur sjálfboðaliða eru fyrrverandi fósturfjölskyldur, oft feður eða mæður sem taka að sér að vera trúnaðarmenn. Í mörgum tilvikum hafa þessar fósturfjölskyldur einnig sent skiptinema. Foreldrar koma þannig inn í starfið í gegnum börn sín sem fara sem skiptinemar og/eða börnin sem fjölskyldan hýsir.
Þriðji hópurinn er svo fólk sem hefur einhvers staðar kynnst AFS, t.d. í bænum sínum eða skólanum, samsamar sig markmiðum samtakanna og vill gjarnan taka þátt í að þau náist.
Sjálfboðaliðahópur AFS samanstendur þannig af fólki á ýmsum aldri, með fjölbreyttan bakgrunn og breiða þekkingu á eðli samtakanna og eðli þeirrar reynslu sem þeir sem taka þátt í nemendaskiptunum ganga í gegnum.
Þarf ég að kunna erlent tungumál til að starfa með AFS?
Nei, það er ekki nauðsynlegt en með því að starfa með AFS færðu tækifæri til að nota tungumálakunnáttuna þína og læra meira.
Er ætlast til að maður eyði miklum tíma í hverjum mánuði í sjálfboðaliðastörf?
AFS ætlast til þess að fólk sinni vel þeim störfum sem það tekur að sér. Þar sem sjálfboðaliðastörf á vegum AFS eru mjög fjölbreytt ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, líka þeir sem hafa ekki mikinn tíma. Mörg störf eru árstíðabundin.
Hvers vegna vill fólk gerast sjálfboðaliðar hjá AFS?
Til að endurgjalda samtökunum þá ógleymanlegu dvöl sem það átti sjálft og hjálpa til við að aðrir fái að upplifa slíkt hið sama.
Til að bæta samtökin þannig að aðrir öðlist jafnvel enn betri reynslu en það sjálft.
Til að kynnast umheiminum.
Til að læra, þroskast og eflast. Það nýtist svo víða annars staðar, m.a. í námi og starfi.

