years-experience access-alumni-network airfare airport-pick-up assistance-with-application-process community-service-placement continuous-support cultural-trips domestic-transport emergency-support field-trips global-competence-certificate grade-transcripts host-family-placement housing individual-contact-person internship-placement language-instruction meals medical-insurance orientations-during-your-time-abroad other pre-departure-orientation product-materials re-entry-orientation school-dipolma school-materials school-placement school-transport school-uniform stipend teaching-materials vaccinations visa-and-passport-fees visa-application-assistance world-wide-presence

Hvað er danskur lýðháskóli?

Danskir lýðháskólar eru einstakir. Skólarnir eru hluti af óformlega menntakerfinu í Danmörku og ekki er hægt að bera þá saman við háskóla eða fagnámskeið þar sem áherslan lögð á próf og drifkraftinn til árangurs. Í dönskum lýðháskólum byggist kennslan á samræðum og þekkingarskiptum á milli kennara og nemenda.

Nemendur (sem eru á aldrinum 18 til 30 ára) dvelja í lýðháskólanum og fræðast þar um ýmislega hluti, allt eftir því hvar áhugasviðið liggur. Þú munt upplifa persónulegan vöxt og öðlast þvermenningarlega vitund. Í lýðháskólanum þróar þú hæfileika þína innan þíns áhugasviðs, þú þroskast persónulega og gerir áætlanir til framtíðar. Þú getur lesið meira um danska lýðháskóla hér.

Brandbjerg Højskole er nútímalegur lýðháskóli, staðsettur í fallegri sveit Danmerkur. Þar er boðið upp á lifandi og uppbyggilegt samfélag þar sem þú getur upplifað einhverja ógleymanlegustu mánuði lífs þíns. Dvöl í lýðháskólanum í Brandbjerg er einstök kynning á Danmörku og danskri menningu og ef til vill skref í átt að frekara námi í Danmörku – hver veit?

Þar muntu hitta kennara með mikla ástríðu fyrir því sem þeir gera og hafa raunverulegan áhuga á þér og samnemendum þínum. Þú munt eignast nána vini og þróa þig á marga vegu. Fjölbreytileikinn er mikils metinn í Brandbjerg og þú munt upplifa andrúmsloft á háskólasvæðinu þar sem allir tengjast þvert á viðfangsefni, áhugamál og bakgrunn. Lýðháskólinn býður upp á 8 meginfög og úrval af 60+ valgreinum. Þar muntu hafa aðgang að kvikmyndum, tónlist, íþróttum og listaaðstöðu allan sólarhringinn.

Brandbjerg Højskole er danskur lýðháskóli með alþjóðlegt yfirbragð. Dönskumælandi nemendur sækja skólann aðallega, en einnig er stefnt að því að hafa bæði alþjóðlega nemendur og nemendur með flóttamannabakgrunn á hverri önn. Þetta þýðir að helstu tungumálin sem notuð eru í skólanum eru blanda af dönsku og ensku. Skólinn fagnar fjölbreytileikanum og gleðinni og áskorununum sem fylgja því að reka skóla með nemendum með ólíka menningu og tungumál!

Á Brandbjerg Højskole er hægt að blanda saman eigin dagskrá. Þar er boðið upp á meira en 65 viðfangsefni, sem skiptast í átta meginflokka og þú getur valið að sökkva þér niður í eitt efnissvið eða blanda saman eftir eigin áhugamálum og forvitni. Sumar námsgreinar eru í boði allt árið í 6-8 klukkustundir á viku, aðrar eru styttri námskeið 2-3 klukkustundir á viku í 6 vikur. Öll námsfög eru í boði á ensku: Tónlist; Sjálfbærni; Verkefnastjórn; Útivera; Persónulegur þroski; Listir og handverk; Stjórnmál og samfélag; Íþróttir og leikir.

Lestu meira um Brandbjerg lýðháskólann hér.

Praktískar upplýsingar:

  • Kostnaður fyrir fæði, gistingu og kynningu meðan á dvöl þinni stendur er innifalinn, en þú þarft samt að leggja fram 90 DKK á viku fyrir námsefni og afþreyingu.
  • Þú tekur þátt í skyldunámi erlendis á vorin. Kostnaður er u.þ.b. 800 Evrur, greitt beint til Lýðháskólans
  • Ef þú velur að læra „útiveru“ tekur þú þátt í auka skyldunámi. Kostnaður við þetta er 320 Evrur, sem greiðist beint til Lýðháskólans.
  • Þú stendur straum af eigin vasapeningum og persónulegum útgjöldum. Danmörk er dýrt land, svo við mælum með að gera ráð fyrir að lágmarki 160 Evrum á mánuði.
  • Sjálfboðaliði frá AFS sækir þig á flugvöllinn og fylgir þér í Lýðháskólann
  • Þér verður boðið á kynningarhelgi á vegum AFS

 

skilyrði

  • Þú þarft að vera 18 ára á árinu
  • Góð enskukunnátta skilyrði

Innifalið í skiptináminu

  • Ferðir til og frá flugvelli
  • Fósturfjölskylda
  • Húsnæði
  • Máltíðir
  • Skóli
  • Trúnaðarmaður/tengiliður
  • Sjúkratryggingar
  • Neyðarsími allan sólarhringinn
  • Ferðalag innanlands
  • Aðstoð vegna umsóknar
  • Undirbúningsnámskeið
  • Námskeið á vegum AFS á meðan á dvöl stendur
  • Global Competence Certificate
  • Kennslugögn
  • Skólagögn
  • Námsgögn
  • Stöðugur stuðningur
  • Hluti af alþjólegum samtökum
  • 70 ára reynsla

Ekki innifalið

  • Flugkostnaður
  • Menningarferðir