years-experience access-alumni-network airfare airport-pick-up assistance-with-application-process community-service-placement continuous-support cultural-trips domestic-transport emergency-support field-trips global-competence-certificate grade-transcripts host-family-placement housing individual-contact-person internship-placement language-instruction meals medical-insurance orientations-during-your-time-abroad other pre-departure-orientation product-materials re-entry-orientation school-dipolma school-materials school-placement school-transport school-uniform stipend teaching-materials vaccinations visa-and-passport-fees visa-application-assistance world-wide-presence

Skiptu út íslenskum hversdagsleika fyrir gríðarstórt og fjölbreytt landslag Bandaríkjanna. Að fara í AFS skiptinám þangað er klassískt ævintýri þar sem þú færð að kynnast spennandi menningu sem er ólík eftir fylkjum og svæðum. Þú munt fullkomna enskuna þína, eignast vini fyrir lífstíð og upplifa sanna gestrisni heimamanna af eigin raun. Fyrrum skiptinemar tala iðulega um hversu mikið sjálfstæði þeir öðluðust og hve sterk bönd þeir mynduðu við sitt nýja nærsamfélag.

Í stað þess að lifa í Hollywood-mynd þar sem allt snýst bara um skólaböll og ruðning, muntu kynnast hinum sanna og ekta bandaríska hversdagsleika. Upplifun þín mótast algjörlega af fósturfjölskyldunni sem velur þig, því þau opna heimili sitt og ákvarða hvar í þessu stóra landi þú munt búa. Skiptinemar lenda oftast í litlum eða meðalstórum bæjum, sem býður upp á mun persónulegri og dýpri tengsl en stórborgirnar. Í slíkum samfélögum er mjög líklegt að þú verðir fljótt skiptineminn sem allur bærinn þekkir og tekur opnum örmum.

skilyrði

Kannaðu hvort að þú uppfyllir skilyrðin fyrir:

  • árs prógrammi hér
  • 5 mánaða prógrammi hér 
  • 3ja mánaða prógrammi hér

Eins og er þá er plássum úthlutað í þeirri röð sem umsóknir berast.

  • Fyrir háskólaprógramm eru aldursviðmið 18-20 ára
  • Allir sem hyggja á skiptinám í Bandaríkjunum þurfa að ljúka ELTIS prófi sem mælir enskukunnáttu. Þetta er einnig krafa sem skólar í USA setja fyrir inntöku. AFS á Íslandi framkvæmir prófin og er ekki þarf að greiða aukalega fyrir það.
  • Umsækjendur á leið til Bandaríkjanna mega ekki hafa fallið í neinu fagi s.l. 2 ár né hafa þurft að endurtaka skólaár.
  • Umsækjendur sem hafa greinst með átröskun eða önnur sálræn veikindi þurfa að hafa verið við fulla heilsu minnst 2 ár fyrir brottför.
  • Nemum er ekki heimilt að reykja.
  • Mjög margar fjölskyldur í USA eiga gæludýr.
  • Það er almennt erfitt að finna fjölskyldu fyrir nema sem er illa við dýr eða eru með fæðuofnæmi.
  • Fleiri en ein brottfaradagsetning er á skiptinámi til USA og ræðst brottför af því hvenær nemar eru komnir með fósturfjölskyldu.
  • Almenn inntökuviðmið má finna hér.
  • AFS á Íslandi áskilur sér rétt til breytinga.
  • Kynntu þér bólusetningakröfur landsins í þessari skrá Bólusetningar skiptinám það er mikilvægt að byrja bólusetningar strax þannig að þeim sé örugglega lokið fyrir áætlaða brottför. Kröfurnar til Bandaríkjanna eru sérstaklega strangar því engir skólar taka á móti nemum sem ekki uppfylla skilyrði bólusetninga.
  • Kynntu þér kröfur vegna áritunar í skránni Áritunarkostnaður_verð. AFS á Íslandi aðstoðar nema við öflun áritunar en kostnaður er ekki innifalinn í þátttökugjöldum.
  • Almenn inntökuviðmið má finna hér.

Innifalið í skiptináminu

  • Flugkostnaður
  • Ferðir til og frá flugvelli
  • Fósturfjölskylda
  • Húsnæði
  • Máltíðir
  • Skóli
  • Trúnaðarmaður/tengiliður
  • Sjúkratryggingar
  • Neyðarsími allan sólarhringinn
  • Ferðalag innanlands
  • Skólabíll
  • Aðstoð vegna umsóknar
  • Aðstoð vegna vegabréfsáritunar
  • Undirbúningsnámskeið
  • Námskeið á vegum AFS á meðan á dvöl stendur
  • Heimkomunámskeið
  • Global Competence Certificate
  • Kennslugögn
  • Skólagögn
  • Access to Alumni Network
  • Stöðugur stuðningur
  • Hluti af alþjólegum samtökum
  • 70 ára reynsla

Ekki innifalið

  • Bólusetning
  • Ferðalög á vegum skóla
  • Menningarferðir
  • Kostnaður vegna vegabréfs og/eða áritunar
  • Einkunnablöð
  • Námsgögn
  • Vasapeningur
  • Skólabúningur