Bandaríkin eru innflytjendaland og fjölbreytni mannlífsins er gríðarleg, hvort sem er í menningu, tónlist, matargerð eða íþróttaiðkun. Í Bandaríkjunum má finna um það bil allar gerðir af landslagi, loftslagi og landsvæðum sem hægt er að hugsa sér. Dægurmenningin er áberandi alls staðar, íþróttir og nýjustu fréttirnar eru vinsæl umræðuefni á mannamótum og hefðir og siðvenjur eru gríðarlega mismunandi, allt eftir svæðum, þjóðernisuppruna og trúarbrögðum. Ákaflega erfitt er að koma með ráðleggingar um hvað er skemmtilegast að gera og skoða í landi þar sem hver einasti bær, úthverfi eða borg stærir sig af einstakri menningu, byggða á sérkennum, aðstæðum og lífsstíl á hverjum stað.

Menntaskólinn er miðpunkturinn í lífi ungmenna víðast hvar í Bandaríkjunum en samfélagið á hverjum stað og ýmis trúfélög bjóða einnig upp á klúbbastarf (allt frá leiklist til taflmennsku), sjálfboðastarf og margs konar tómstundastarf fyrir börn og ungmenni. Hópíþróttir eru mjög vinsælar og eftir skóla fara margir nemendanna beint á æfingu. Amerískur fótbolti, evrópskur fótbolti, hlaupaíþróttir, hafnabolti, sund, blak og klappstýrufimi eru yfirleitt vinsælustu íþróttagreinarnar. Íþróttakappleikir menntaskólaliðanna laða til sín fjölda áhorfenda á öllum aldri. Og um helgar er farið í partý, rápað í búðir eða bara slakað á með vinunum. Margar fjölskyldur leggja ríka áherslu á nám barnanna (enda hörð samkeppni um aðgang að góðum háskólum), en foreldrar hvetja unglinga sína líka til að skemmta sér og vera með vinunum.

 

Fólk og samfélag

Skiptinemar dvelja um allt landið en þá oftar í minni bæjum. Það er engin „týpísk“ AFS fósturfjölskylda, fjölskyldurnar eru af ýmsu þjóðerni, af mismunandi uppruna og ólíkri fjölskyldugerð. Heimilishald getur verið mjög ólíkt á milli fjölskyldna og miklu skiptir að nemar komi með opinn huga hvað það varðar. Almennt er ætlast til að ungmenni hjálpi til í eldhúsinu og/eða við ákveðin húsverk. Kvöldmaturinn er iðulega mikilvægasta máltíðin en einnig er algengt að fjölskyldur kaupi tilbúinn mat og eða borði „úti“.

A photo posted by mikocrot (@widi_miko) on

Skóli

Skipulag, skylduáfangar og kröfur eru mismunandi á milli skóla. Skólaárið hefst í ágúst/september og endar í maí/júní. Oftast byrja skiptinemar á að hitta ráðgjafa sem hjálpar þeim að velja 5-6 fög fyrir hverja önn. Flestir nemar fara í opinbera skóla og þar er vanalega ekki notast við skólabúninga.

Tungumál

Enska er opinbera tungumálið í Bandaríkjunum en margir tala einnig spænsku eða annað tungumál sem tengist uppruna þeirra eða fjölskyldunnar. Gerð er krafa um góða enskuþekkingu og skiptinemar þurfa að standast stöðupróf til að umsókn þeirra til landsins sé samþykkt.

A photo posted by Lynn Rathé (@lynntjeeee) on

A photo posted by Liene Žīgure (@llliene_) on

Matur

Mexíkanskur, ítalskur, tælenskur, japanskur, grískur matur- nefndu hann! – hér er allt í boði, jafnvel í minni bæjum. Ekki samt gleyma að prófa klassískan amerískan mat eins og pylsur og hamborgara, humarsúpu, sætar kartöflur og eplabökur.

Skoða skiptinám í Bandaríkin