Hvað er AFS fjölskylda?

AFS hefur hvatt fjölskyldur til að bjóða erlenda nemendur velkomna inn á heimili sín síðan 1947. AFS fjölskylda, sem lengi hafa verið taldar lykilatriði í vellíðan skiptinema, bjóða upp á svo miklu meira en húsaskjól og mat.

AFS fjölskylda, með stuðningi frá sjálfboðaliðum og starfsfólki AFS, hjálpa nemendum að kynnast nýja skólanum og samfélaginu, eignast vini, læra tungumálið og njóta dvalarinnar. AFS fjölskylda tengjast í gegnum mismunandi menningu og hefðir og oft verður til ævilöng vinátta.

Frábær menningarferð fyrir alla fjölskylduna

Að hýsa erlendan skiptinema er frábær leið til að fræðast um framandi menningu og deila þinni eigin menningu og gildum. Börn njóta þess oft að kynna nýja bróðurinn eða systurina fyrir siðum, hefðum og frídögum í sínu landi. Allt frá undirbúningi máltíða til skoðunarferða. Slík reynsla veitir fjölskydunni tækifæri til að uppgötva og gera sér grein fyrir sérkennum ólíkra menningarheima.
HF_ADV

Taktu ævintýrum fagnandi

Sjáðu þinn veruleika með augum ungmennis frá öðru landi

HF_CHANGE

Taktu breytingum fagnandi

Myndaðu tengsl við fólk um allan heim

HF_DISC

Taktu uppgötvunum fagnandi

Aðstoðaðu erlendan skiptinema við að lifa í og njóta menningar og hefða þíns lands.

Hverjar eru ástæðurnar fyrir því að fjölskyldan ákvað að taka á móti skiptinema?

  1. "Ég var sjálf skiptinemi og mig langaði að deila mínu heimili."

  2. "Til að gefa ungu fólki tækifæri á að öðlast þá reynslu að búa við aðra menningu en þau þekkja frá sínu heimalandi."

  3. "Gaman að kynnast annarri menningu og kynna íslenska menningu."

Hver er helsti kosturinn við að vera AFS fjölskylda?

„Mannleg samskipti eru gefandi. Erlendur nemandi gefur fjölskyldunni innsýn í menningu þeirra og land. Það er líka skemmtilegt og verðmætt að upplifa eigið land í gegnum aðra manneskju sem sér það með allt öðrum augum.“

–AFS fjölskylda á Íslandi

„Gaman að kynnast öðru fólki með mismunandi bakgrunn. Við eigum fjölskyldur í Ítalíu, Frakklandi og Dóminíska Lýðveldinu, þar sem ég var árið 2002-2003.“

–AFS fjölskylda á Íslandi

Sótt um að verða AFS fjölskylda

STEP1

Kynntu þér málið og sæktu um

Kynntu þér hvers vegna AFS fjölskylda eru skiptinemanum svona mikilvægar. Umsóknarferlið okkar er ítarlegt, því við viljum finna einstaklinginn sem hentar fjölskyldunni þinni best.

STEP2_HF

Þú hefur verið valin(n)

Við leggjum mikla áherslu á að finna góðar fjölskyldur. Það er engin „dæmigerð“ AFS fjölskylda til, en við höfum þó mikla reynslu af því að finna „réttu“ fjölskyldurnar.

STEP3

Búðu þig undir að hýsa skiptinema

Hittu þjálfaða sjálfboðaliða og starfsfólk sem styður fjölskylduna þína og hjálpar þér að gera reynslu þína af AFS gefandi og skemmtilega.

STEP4_HF

Taktu vel á móti skiptinemanum

Opnaðu heimili þitt og hjarta fyrir nýja fjölskyldumeðlimnum og upplifðu ólíka menningu.