years-experience access-alumni-network airfare airport-pick-up assistance-with-application-process community-service-placement continuous-support cultural-trips domestic-transport emergency-support field-trips global-competence-certificate grade-transcripts host-family-placement housing individual-contact-person internship-placement language-instruction meals medical-insurance orientations-during-your-time-abroad other pre-departure-orientation product-materials re-entry-orientation school-dipolma school-materials school-placement school-transport school-uniform stipend teaching-materials vaccinations visa-and-passport-fees visa-application-assistance world-wide-presence

Skiptu út kyrrlátri, íslenskri náttúru fyrir iðandi mannlíf, suðrænar strendur og taktfasta orku Brasilíu. AFS skiptinám hér er ógleymanleg dýfa ofan í hlýja og tjáningarríka menningu þar sem tónlist og lífsgleði fylla göturnar. Þú munt læra portúgölsku, eignast ástríðufulla vini og upplifa stórkostlega og fjölbreytta þjóðarsál af eigin raun. Fyrrum skiptinemar lýsa dvöl sinni í Brasilíu gjarnan sem litríkasta ævintýri lífs síns, sem eflir sjálfstæði og breytir sýn þeirra á heiminn til frambúðar.

Líf skiptinemans er uppfullt af háværum og orkumiklum hversdagsleika sem gæðir venjulega gráa virka daga sönnum karnival-anda. Þú munt njóta stórkostlegrar suðrænnar náttúru innan um fólk sem hefur brennandi ástríðu fyrir fótbolta í blóðinu. AFS fósturforeldrar þínir verða gríðarlega ástríkir en jafnframt verndandi, svo það er lykilatriði að rækta góð samskipti og byggja upp traust. Með því að taka þessum lífsglaða og hlýja lífsstíl opnum örmum muntu fljótt gera þetta risastóra, fallega land að þínum öðrum heimakynnum.

skilyrði

  • Þú þarft að vera fæddur: frá 4 febrúar 2005 til 4. ágúst 2008 .  
  • Ekki er gerð krafa um kunnáttu í portúgölsku en við ráðleggjum þér að byrja læra málið sem fyrst.
  • Nemum er ekki heimilt að reykja.
  • Almenn inntökuviðmið má finna hér.
  • AFS á Íslandi áskilur sér rétt til breytinga.
  • Kynntu þér bólusetningakröfur landsins í þessari skrá Bólusetningar skiptinám það er mikilvægt að byrja bólusetningar þannig að þeim sé örugglega lokið fyrir áætlaða brottför.
  • Kynntu þér kröfur vegna áritunar í skránni Áritunarkostnaður_verð. AFS á Íslandi aðstoðar nema við öflun áritunar en kostnaður er ekki innifalinn í þátttökugjöldum.
  • Nemar sem fara í skiptinám til Brasilíu á sumarbrottför geta ekki ferðast til útlanda á tímabilinu júní og júlí og nemar á vetrarbrottför geta ekki ferðast til útlanda á tímabilinu desember og janúar. Á þessum tímabilum er áritunarferli í hámarki og vegabréf nemans ásamt gögnum er sent viðkomandi sendiráði í Noregi og getur það tekið sér 6-8 vikur í að klára áritunina.
  • Ef þú heldur að það gæti verið að þú uppfyllir ekki skilyrðin fyrir skiptinámið, vertu í sambandi og sendu okkur fyrirspurn á [email protected]

Eins og er þá er plássum úthlutað í þeirri röð sem umsóknir berast.

Innifalið í skiptináminu

  • Flugkostnaður
  • Ferðir til og frá flugvelli
  • Fósturfjölskylda
  • Húsnæði
  • Máltíðir
  • Skóli
  • Trúnaðarmaður/tengiliður
  • Sjúkratryggingar
  • Neyðarsími allan sólarhringinn
  • Ferðalag innanlands
  • Skólabíll
  • Leiðbeingar tungumáls
  • Aðstoð vegna umsóknar
  • Aðstoð vegna vegabréfsáritunar
  • Undirbúningsnámskeið
  • Námskeið á vegum AFS á meðan á dvöl stendur
  • Heimkomunámskeið
  • Kennslugögn
  • Skólagögn
  • Stöðugur stuðningur
  • Hluti af alþjólegum samtökum

Ekki innifalið

  • Bólusetning
  • Ferðalög á vegum skóla
  • Menningarferðir
  • Kostnaður vegna vegabréfs og/eða áritunar
  • Skólaskírteini
  • Námsgögn